Berglind Elva hefur víðtæka þekkingu og mikla reynslu af samskiptum og ráðgjöf en hún starfaði hjá Heilsuborg um árabil sem þjónustustjóri, ráðgjafi og síðast verkefnastjóri. Starfaði um tíma sem virkniráðgjafi hjá félagsþjónustu Árborgar og starfar í hlutastarfi sem náms- og starfsráðgjafi í einum af grunnskóla í Árborgar. Lokaverkefni Berglindar Elvu í MA náms- og starfsráðgjöf frá HÍ fjallaði um innri sigra í starfsendurhæfingu - upplifun og reynsla kvenna af sjálfsvinnu og sjálfsuppbyggingu. Berglind Elva hefur starfað sem sjálfboðaliði í ECPO (Europian coalation of people living with obesity) frá árinu 2019 og er einn þriggja fulltrúa Íslands þar. https://eurobesity.org/
Frá unga aldri hefur mannlegi þáttur lífsins verið Berglindi Elvu efst í huga, saga fólks og setja sig í þeirra spor. Helstu áherslur í viðtölum er einstaklingsráðgjöf og felst hún í því að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur hvert sem verkefnið er:
o Persónuleg ráðgjöf
• Andleg líðan
• Meðvirkni
• Áföll
• Líkamleg heilsa
• Yoga Nidra einstaklingstímar
o Náms- og starfráðgjöf
• Markmiðasetning
• Námstækni
• Starfsval
• Námsval