Lífsvefurinn

Lífsvefurinn Sjálfsþekkingarnám fyrir konur. Saga kvenna, sagan mín; Tilfinningar og tengsl; Sjálfsþekking og samskipti; Fordómar og fyrirmyndir; Draumar og auður.

Lífsvefurinn er sjálfsþekkingarnám fyrir konur, sem varð til í samvinnu félagsráðgjafanna Karólínu Stefánsdóttur og Valgerðar H. Bjarnadóttur. Fyrsta námskeiðið var haldið 1992 á Akureyri, og síðan hafa þúsundir kvenna um allt land og víðar um heiminn sótt ýmsar útgáfur grunnnámskeiðsins og framhaldsnámskeið. Þróuð hafa verið námskeið sérstaklega sniðin að ólíkum hópum, s.s. konum sem í starfi sín

u styðja við aðrar konur; konur í atvinnuleit; konur á tímamótum; ungar mæður; erlendar konur o.s.frv. Mæður Lífsvefsins nýta nálgunina líka á öðrum námskeiðum og í handleiðslu og ráðgjöf. Grunnurinn í Lífsvefnum er heildarhugsun og hringurinn er nýttur sem grunnform til að skoða lífsheildina, ævihringinn, tengsl og samskipti. Byggt er á eigin kvenlægri þekkingu og reynslu, skapandi samtali mæðra þessa námsefnis, samtali við þátttakendur, auk kenninga og hugmynda annarra kvenna og karla með ólíka menntun og sjónarhorn. Helstu efnisþættir eru: Saga okkar og staða; Tilfinningar og tengsl; Sjálfsþekking og samskipti; Fordómar og fyrirmyndir; Draumar og lífsauður. Lífsvefurinn er nú í boði fyrir konur á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem hægt er að koma með námskeið hvert á land sem er ef hópar óska eftir því.

Address

Akureyri

Telephone

8953319

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lífsvefurinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Lífsvefurinn:

Share