Bókasafnið á Breiðdalsvík

Bókasafnið á Breiðdalsvík Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Bókasafnið á Breiðdalsvík, Selnes 25, Breiðdalsvík.

31/03/2026

Safnið er opið í dag kl. 14 - 18. Næst verður opið þriðjudaginn 7. apríl. Gleðilega páska.

26/03/2026

Vinsamlegast athugið að safnið er lokað í dag, fimmtudaginn 26. mars. Opið verður þriðjudaginn 31. mars kl. 14 - 18.

26/03/2026

Nýtt efni:

Í framlínu - Júlíus Ó. Einarsson
Ég og Milla í pössun - Anne Sofie Hammer
Myrkravald - Eva Björg Ægisdóttir og Jérome Loubry
Hinn æðsti leyndardómur - Dan Brown

24/03/2026

Bókasöfn eru fastur punktur í tilveru margra. Þau eru staður þar sem fjölskyldur og vinir koma saman, þar sem fólk sækir fræðslu og þjónustu, staður þar sem þið öll eruð velkomin.

24/03/2026
20/03/2026

Bókasöfn eru svo miklu meira en bækur. Á bókasafninu eru öll velkomin til að læra, lesa, hitta fólk, skapa, fræðast og almennt til að njóta. Átt þú bókasafn sem þú sækir að staðaldri?

20/03/2026

Nýtt efni:

Líknarinn - Viveca Sten
Eftirmáli - Cecelia Ahern
Örlagasteinarnir - Ann Cleeves

19/03/2026

Bókasafnið mitt.

Lestur - frumkraftur
Það felst í því algjörlega lygilega snilld að búa til kerfi úr u.þ.b. 34 táknum, úr hverjum er hægt að setja saman þvílíkan orðafjölda sem tákna hugsanir okkar og meiningar, sem við getum sett á skinn eða blað, geymt og bætt við, lesið og lært. Þegar prentverkið tekur svo við þessum táknum og finnur upp aðferð til að dreifa orðum okkar og hugsunum bæði hratt og víða þá hefur það í för með sér þvílíkan sprengikraft að atómsprengjan skammast sín! Framfarirnar sem áttu sér stað eftir að lestur varð almenningseign, eru engu líkar!

Bókasöfn- valdefling
Það er gaman að skoða hvernig bókasöfnin verða til hér á nítjándu og tuttugustu öld. Hvað það er mikill hugsjónaeldur sem í raun býr að baki. Hér á landi voru það bændur sem tóku sig saman vítt og breytt um landið og stofnuðu lestrarfélög og svo bókasöfn í framhaldi af þeim, þar sem þeir lögðu þær bækur sem til voru á hverjum bæ, í púkk og lánuðu hver öðrum og öllum sem vildu og gátu lesið. Það var þess tíma aðferð til að valdefla þjóðina þó svo það orð hafi ekki verið til þá.

Staðan - vandinn.
Tölvurnar bjóða sannarlega uppá fjölbreyttari tjáningarform en penninn og auðvitað nýtum við okkur það. En í framhaldinu blasir við nýr veruleiki, við fáum hverja könnunina á fætur annarri um lélega lestrarkunnáttu barna og fíkn í skjánotkun sem er vandamál okkar allra en ekki bara barnanna. Að geta verið með vinina í tölvunni færir okkur nær þeim sem eru langt í burtu en líka fjær þeim sem eru við hliðina á okkur. Við tölum við alla í skeytasendingum, eins stuttum setningum og við mögulega getum, notum táknmál til að flýta fyrir okkur og tölum æ sjaldnar hvert við annað í raunheimum. Við blasir e.k. afturhvarf í hellaristur þar sem við erum farin að notast við einfaldar myndir af brosandi köllum, reiðum köllum eða grín-aktugum kerlingum, kettlingum eða grænmeti og ávöxtum til að segja hvað okkur finnst og hvernig okkur líður. Og ég get lofað ykkur því að það ríkir engin eining um hvað þessi tákn þýða.
Einangrunin sem fylgir tölvunotkuninni hefur komið aftan að okkur. Næsti heimsfaraldur er þegar hafinn og hann er kallaður einmannaleiki. Svo alvarlegt er þetta orðið að bretar og nokkrar fleiri þjóðir eru þegar komnar með ráðuneyti í þessum málaflokki. Það er verið að eyða gífurlegum tíma og peningum í að finna út og koma af stað allskyns ferlum til að reyna að laga stöðuna.

Bókasafn - samfélag
Og þá erum við komin að kjarna málsins, bestu hjálpinni sem býðst í dag, bókasafninu þínu og mínu.
Bókasöfnin eru trú sínu þjónustuhlutverki sem völlur til valdeflingar þjóðar. Þau eru menningarmiðstöðvar, þau eru samfélag. Við viljum fá fólk til okkar til að nýta bókakostinn en ekki síður til að njóta samvista við aðra. Það er hægt að koma á safnið þó maður eigi ekki kort og ætli ekki að fá lánaðar bækur. Við kaupum dagblöðin og glansblöðin sem er hægt að fletta hjá okkur, það er hægt að koma með prjónana sína eða fá lánuð spil. Sumir koma með vinum sínum eða hitta þá á safninu aðrir koma til að vera einir og í friði fyrir áreiti heima fyrir, það er hægt að spjalla við aðra og líka bara vera í sínu.
Það á að vera gott að koma og gott að vera hjá okkur og nýta þjónustuna en ekki síst að njóta þess að vera í samfélagi við aðra.
Þannig tökumst við á við áskoranir samtímans, saman en ekki ein. Velkomin á Bókasafnið.

Með kveðju, Heiðrún D. Eyvindardóttir
forstöðumaður Bókasafns Árborgar

[email protected]

17/03/2026

Nýtt efni:

Landamæralaus - Jörn Lier Horst
Mið-Austurlönd - Magnús Þorkell Bernharðsson
Helförin - Laurence Rees

10/03/2026

Nýtt efni:

Síðasti leikurinn - Angela Marsons
Brúðkaupsfólkið - Alison Espach
Irpa - Hildur Knútsdóttir
Herranótt - Steindór Ívarsson
Amelía og Óliver fara í bústað - Kristín Björg Sigurvinsdóttir

Address

Selnes 25
Breiðdalsvík
760

Opening Hours

Tuesday 14:00 - 18:00
Thursday 17:00 - 19:00

Telephone

+3544705574

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bókasafnið á Breiðdalsvík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Bókasafnið á Breiðdalsvík:

Share