Vélaverkstæðið Árteigi

Vélaverkstæðið Árteigi Túrbínusmíði út með Kinnarfjöllum í Þingeyjarsýslu. Saga túrbínusmíði út með Kinnarfjöllum í Þingeyjarsýslu nær aftur um röska hálfa öld.

Jón Sigurgeirsson í Árteigi hóf smíði á rafstöðvum fyrir 1950, en um var að ræða litlar rafstöðvar með 12 eða 24 volta jafnstraumsrafala sem voru settar í fjölmarga bæjarlæki í Þingeyjarsýslu. Um 1950 byggði Jón sína fyrstu alvöru rafstöð fyrir Granastaðabæina, en svo kallast bæjarþyrpingin út með Kinnarfjöllum sem samanstendur af Granastöðum, Ártúni, Árteigi I og II og Fitjum. Hefur stöðin verið

stækkuð í tvígang og endurbyggð og getur nú framleitt um 200 kw. Um 1980 hóf Eiður, sonur Jóns, að starfa á verkstæðinu og tók við rekstrinum eftir að hafa lokið prófi í rafvirkjun. Um 1988 kom bróðir hans Arngrímur til starfa en hann er lærður vélvirki. Saman framleiða þeir bræður 3 til 4 túrbínur á ári. Við hönnun á þeim hafa þeir fengið til liðs við sig Árna S. Sigurðsson, vélaverkfræðing, sem starfar á Verkfræðistofu Norðurlands á Akureyri. Árni er sérmenntaður í túrbínufræðum og gerir alla helstu útreikninga varðandi smíðina. Um 70-80 túrbínur, framleiddar í Árteigi, eru í gangi víðsvegar á Íslandi. Auk þeirra eru þrjár sem snúast á Grænlandi og ein í Færeyjum. Samtals framleiða þessar stöðvar rúmlega tvö megawött.

Address

Árteigur
Húsavík
641

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vélaverkstæðið Árteigi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Vélaverkstæðið Árteigi:

Share