Bíótekið

Bíótekið Kvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís.

Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.

💛
20/04/2026

💛

Við elskum Bíótek á Þingeyri💛💚💙🩵❤️🩷
20/04/2026

Við elskum Bíótek á Þingeyri💛💚💙🩵❤️🩷

Síðasta Bíótekið - Kvikmyndasafn Íslands í Bíó Paradís þennan vetur!Þrjár stórkostlegar perlur kvikmyndanna. Klukkan 15:...
15/04/2026

Síðasta Bíótekið - Kvikmyndasafn Íslands í Bíó Paradís þennan vetur!

Þrjár stórkostlegar perlur kvikmyndanna.

Klukkan 15:00. Hryllingsmyndin um Frankenstein (1931). Hin heimsfræga saga um skrímsli sem okkur fer að þykja vænt um. Skrímslið sem getur ekkert gert að því gert að vera skrímsli.

Klukkan 17:00. Stemningsrík og táknræn hugleiðing um ofbeldi, einangrun og karlmennsku í kvikmyndinni Blóðrautt sólarlag (1977) eftir Hrafn Gunnlaugsson sem hefur verið gerð upp fyrir hvíta tjaldið af Kvikmyndasafni Íslands.
Hrafn Gunnlaugsson ræðir við áhorfendur eftir sýninguna og boðið verður upp á léttar veitingar.

Klukkan 19:00 verður síðast en alls ekki síst, síðasta kvikmynd lita-þríleiksins: Rauður eftir Krzysztof Kieslowskis. Rauður er lokaverk og hápunktur þríleiksins þar sem örlög og tengsl ólíkra einstaklinga fléttast saman í hljóðlátri leit að samstöðu og bræðralagi.
Lita-þríleikurinn eftir Kieslowskis.íer allur sýndur í samstarfi við Pólska Sendiráðið í Reykjavík og Franska sendiráðið á Íslandi.

Það er alltaf frábært að vera í Bíó Paradís, popp og kók á heimsmælikvarða og innileg stemning. Sjáumst! Það er langöruggast að tryggja sér miða hér: https://bioparadis.is/vidburdir/biotekid/


Ambassade de France en Islande/ Franska sendiráðið á Íslandi
Ambasada RP w Reykjaviku/Pólska Sendiráðið í Reykjavík

Við viljum þakka öllum fyrir komuna í Bíótekið síðasta sunnudag. Þvílík stemning og troðfullt á öllum sýningum dagsins. ...
26/03/2026

Við viljum þakka öllum fyrir komuna í Bíótekið síðasta sunnudag. Þvílík stemning og troðfullt á öllum sýningum dagsins.

Við þökkum sömuleiðis kærlega fyrir samstarfið við Franska sendiráðið á Íslandi, Pólska Sendiráðið í Reykjavík, Embassy of Japan in Iceland og Bíó Paradís

Næstu sýningar í Bíótekinu - Kvikmyndasafn Íslands verða 19. apríl.

Franskenstein frá 1931 í leikstjórn, James Whale,
Blóðrautt sólarlag, ný uppgerð - eftir Hrafn Gunnlaugsson og Rauður eftir Krzysztof Kieslowski .

19/03/2026
Núna á sunnudaginn, 22. mars.
19/03/2026

Núna á sunnudaginn, 22. mars.

Address

Hverfisgata 54
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bíótekið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Bíótekið:

Share

Category