The Reykjavik Friends of the Arts Society, founded in 1982, has the goal to enrich and support the thriving art scene in Iceland and to organise ambitious and elaborate arts events, both period and innovative performances. Listvinafélagið í Reykjavík - áður Listvinafélag Hallgrímskirkju - var stofnað 1982 með það markmið að efla listalíf við Hallgrímskirkju og stóð félagið fyrir mjög blómlegu list
astarfi í kirkjunni allt til ársins 2020. Félagið verður áfram í nánu samstarfi við kórana Mótettukórinn (áður Mótettukór Hallgrímskirkju) og Schola cantorum. Félagið hyggst styðja við upprunaflutning m.a. í samstarfi við
Alþjóðlegu barokksveitina ( áður The Hague International Baroque Orchestra - Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju) og einnig stuðla að nýsköpun í listum. Nýsköpun hefur frá upphafi skipað stóran sess í starfi Listvinafélags Hallgrímskirkju og hafa fjölmörg verk íslenskra höfunda verið frumflutt á vegum Listvinafélagsins, tónverk, frumsamin ljóð, leikrit, myndlistasýningar o fl. Einnig var Listvinafélagið bakhjarl 15 Kirkjulistahátíða sem haldnar voru í kirkjunni 1987-2019. Stjórn Listvinafélagsins í Reykjavík 2021-2022 skipa: Hörður Áskelsson listrænn stjórnandi, Rósa Gísladóttir formaður, Alexandra Kjeld meðstjórnandi, Auður Perla Svansdóttir fulltrúi Mótettukórsins og Helgi Steinar Helgason fulltrúi Schola cantorum. Í varastjórn eru Ágúst Ingi Ágústsson, Halldór Hauksson, Halla Björgvinsdóttir fulltrúi Mótettukórsins og Benedikt Ingólfsson fulltrúi Schola cantorum. Framkvæmdastjóri félagsins er Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari. Viðburðir félagsins verða haldnir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og um land allt og má t.d. nefna að Jólaóratórían eftir J.S.Bach verður flutt í Eldborgarsal Hörpu 28. nóvember 2021. Flytjendur verða Mótettukórinn, Alþjóðlega barokksveitin og 4 frábærir einsöngvarar undir stjórn Harðar Áskelssonar. Saga félagsins:
Listvinafélagið, sem á sér 39 ára langa sögu í Hallgrímskirkju, skipulagði þar um 50-60 tónleika á ári, þar á meðal undir merkjum Jólatónlistarhátíðar í Hallgrímskirkju, Alþjóðlegs orgelsumars og skipulagði þrjár til fjórar myndlistarsýningar árlega í forkirkju Hallgrímskirkju með viðurkenndum listamönnum. Listvinafélagið studdi einnig við fjölbreyttan og vandaðan tónlistarflutning í helgihaldi kirkjunnar ásamt kórum kirkjunnar og margir gestakórar komu fram á þess vegum. Sálmafoss sem Listvinafélagið skipulagði var einnig einn af föstum viðburðum á Menningarnótt í Hallgrímskirkju.
Á aðalfundi Listvinafélagsins í Hörpu 26. maí 2021 var samþykkt að breyta nafni félagsins í Listvinafélagið í Reykjavík. Ástæðan fyrir nafnabreytingunni er sú að Hallgrímssöfnuður sagði upp samstarfssamningi sínum við Listvinafélagið í júní 2020 og ekki var áhugi af hálfu sóknarnefndar kirkjunnar fyrir áframhaldandi starfi Listvinafélagsins innan veggja kirkjunnar eins og áður.