Sambíóin Egilshöll

Sambíóin Egilshöll Miðasalan opnar 30 mín fyrir fyrstu sýningu hvers dags en Sambio.is er opin allan sólarhringinn!
(890)

Flottasta kvikmyndahús landsins.

• Digital 3D vélar í öllum 4 sölum.
• 200fermetra breiðtjald í Sal 1.
• Leður sæti sem halla.

⭐️ Michael fær 7.6 á IMDb ⭐️Upplifðu söguna um goðsögnina á stærsta skjá landsins í Sal 1.Tryggðu þér miða núna 🎬
23/04/2026

⭐️ Michael fær 7.6 á IMDb ⭐️

Upplifðu söguna um goðsögnina á stærsta skjá landsins í Sal 1.

Tryggðu þér miða núna 🎬

Gefðu frábæra upplifun í jólagjöf 🎁
05/12/2025

Gefðu frábæra upplifun í jólagjöf 🎁

Forsalan fyrir Wicked: For Good er hafin – nældu þér í miða áður en þeir svífa burt! 🧹💚
31/10/2025

Forsalan fyrir Wicked: For Good er hafin – nældu þér í miða áður en þeir svífa burt! 🧹💚

Áríðandi tilkynning: Það er opið hjá okkur í kvöld vegna veðurs!
28/10/2025

Áríðandi tilkynning: Það er opið hjá okkur í kvöld vegna veðurs!

16/10/2025
Sýnd í kvöld hjá okkur kl 20:00 í stóra salnum!
13/10/2025

Sýnd í kvöld hjá okkur kl 20:00 í stóra salnum!

Ein besta sci-fi/futurism bíómynd tíunda áratugar síðustu aldar, Gattaca, verður sýnd mánudagskvöldið 13. október í stærsta salnum í Sambíóunum Egilshöll. Miðasala fer fram hér: https://new.sambio.is/event/3214/gattaca_1997

Gattaca er skrifuð og leikstýrð af Nýsjálendingnum Andrew Niccol og það er ennþá óhætt að segja að þetta sé hans besta mynd.

Gattaca var ekki sýnd í bíó hérlendis á sínum tíma heldur uppgötvuðu íslenskir kvikmyndaunnendur hana ekki fyrr en hún kom út á DVD, sem var þá glænýr miðill.

Niccol hefur alltaf haft áhuga á hugmyndum um framtíðina og ekki síst hvernig framtíðin mun virka á venjulegt fólk. Gattaca kafar ofan í framtíðarvæntingar í skugga genetísks gegnsæis, handrit hans að The Truman Show er undanfari holskeflu raunveruleikasjónvarps sem hefur ekki farið fram hjá neinum, mynd hans Simone er kannski að rætast loks núna með tilkomu AI "leikkonunnar" Tilly Norwood og In Time (með alla sína galla) myndgerir líftíma fólks sem gjaldmiðil.

Það er ekki veikan blett að finna í Gattaca, hvorki í tækni né leik en að öðrum ólöstuðum þá stendur tónlist hins fjölhæfileikarríka tónskálds Michael Nyman upp úr, en hann varð heimsfrægur nokkrum árum áður fyrir tónlist sína í The Piano. Nyman hefur gert mjög lítið af kvikmyndatónlist síðan Gattaca og ekkert síðustu 20 árin.

Það er frábært hvað það er verið að sýna mikið af klassískum bíómyndum í bíó hérlendis því bíósalsupplifunin er alltaf sér á parti. Nexus mælir auðvitað með því að sjá sem mest af eldri klassík í bíó og við viljum vekja sérstaka athygli á Gattaca, sem er ekki eins þekkt og hún á skilið að vera.

Address

Fossaleynir 1
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 17:00 - 23:00
Tuesday 17:00 - 23:00
Wednesday 17:00 - 00:00
Thursday 17:00 - 00:00
Friday 17:00 - 00:00
Saturday 14:00 - 00:00
Sunday 14:00 - 00:00

Telephone

+3545758941

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sambíóin Egilshöll posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Sambíóin Egilshöll:

Share

Category