03/05/2026
JÆJA!!! Í kvöld sýnir Bíó Paradís hið sígilda meistaraverk Mario Bava, La maschera del demonio. Einnig þekkt sem BLACK SUNDAY. Þetta er myndin sem Svartir Sunnudagar draga nafn sitt frá! Þetta er LOKAMYND þrettánda sýningarárs Svartra Sunnudaga. Við þökkum öllum sem mættu í bíó og horfðu á undarlegar ræmur. Hvaða myndir eigum við að sýna á næsta sýningarári?