FIRST LEGO League Ísland

FIRST LEGO League Ísland UPPGÖTVUN - NÝSKÖPUN - ÁHRIF - ÞÁTTTAKA - TEYMISVINNA - SKEMMTUN

Tækni- og hönnunarkeppni fyrir grunnskólanema haldin árlega í nóvember af Háskóla Íslands.

First Lego League er alþjóðleg Lego keppni fyrir ungmenni á aldrinum 10-16 ára sem hefur verið haldin af Háskóla Íslands síðan árið 2005. Tilgangur First Lego League (FLL) er að bjóða ungu fólki að taka þátt í spennandi verkefnum sem:
- skapa færni í vísindum, verkfræði og tækni
- örva nýsköpun
- byggja upp lífsleiknihæfileika eins og sjálfstraust, samvinnu- og samskiptahæfni

Í FLL er unnið þverf

aglega og keppninni má skipta upp í eftirfarandi áhersluþætti:
- forritun og hönnun
- nýsköpunarverkefni
- miðlun – kynning og básagerð
- liðsheild

FLL hvetur krakkana til að prófa og kanna hugsun og nálgunaraðferðir vísindagreina, jafnvel útvíkka þær eða gjörbreyta þeim, hvort sem er með sköpun, tækni eða rannsóknum. Áhersla er lögð á að hagnýta nálgun þar sem rýnt er samhliða í framkvæmd og fræði.

Í FLL eru allir eru sigurvegarar. Dómarar læra af keppendum, leiðbeinendur læra af liðssveitum og við lok hvers verkefnis hafa nemendur dýpkað sig í viðfangsefnum og spenntir að fá að taka þátt aftur. Lögð er áhersla á að góður keppnisandi ríki; liðin séu hvetjandi hvort við annað og ýmislegt gert til að liðin kynnist hvort öðru og verkefnum annara.

FLL þema ársins er BIOGLOW!https://www.youtube.com/watch?v=_g9kl7xb8nUVið hvetjum ykkur til að skrá lið frá ykkar skóla ...
04/05/2026

FLL þema ársins er BIOGLOW!
https://www.youtube.com/watch?v=_g9kl7xb8nU

Við hvetjum ykkur til að skrá lið frá ykkar skóla og taka þátt í þessu lærdómsríka og skemmtilega verkefni.

Skráning lýkur 8. maí 2026 - fyrstur kemur, fyrstur fær: https://forms.cloud.microsoft/e/sSBEv3Sf6e

Þrautabrautin verður send út í lok ágúst. Keppnin verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 14. nóvember 2026.

Ef þið hafið spurningar eða óskið eftir frekari upplýsingum, ekki hika við að hafa samband!

Introducing the FIRST LEGO League season, coming August 4, 2026. https://hubs.ly/Q04fcrjm0

20/04/2026

Við viljum bjóða grunnskólum að taka þátt í FIRST LEGO League (FLL) 2026, spennandi alþjóðlegu verkefni sem sameinar sköpun, tækni og teymisvinnu. FLL er ætlað nemendum á grunnskólastigi og gefur þeim tækifæri til að takast á við raunveruleg viðfangsefni með aðferðum verkfræði og forritunar.

Við hvetjum ykkur til að skrá lið frá ykkar skóla og taka þátt í þessu lærdómsríka og skemmtilega verkefni.

Skráning fer fram í gegnum Microsoft Forms: https://forms.cloud.microsoft/e/sSBEv3Sf6e

Vinsamlegast athugið: Skráning hefst 20. apríl og lýkur 8. maí 2026. Einungis 24 lið geta skráð sig til keppni - fyrstur kemur, fyrstur fær.

Keppendur eru á aldrinum 10-16 ára. Í hverju liði eru 4-10 keppendur og að minnsta kosti einn fullorðinn leiðbeinandi.

Nýja þrautabrautin verður send út í lok ágúst, þar sem liðin vinna með nýtt viðfangsefni á hverju ári.

Kostnaður við þátttöku ásamt gjaldi fyrir þrautabraut er 55.000 kr. Greiðsluseðlar verða sendir á skólana í lok júní (30.000 kr þátttökugjald per lið og 25.000 kr fyrir hverja þrautabraut).

Keppnin verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 14. nóvember 2026.

Ef þið hafið spurningar eða óskið eftir frekari upplýsingum, ekki hika við að hafa samband.

19/03/2026

Í dag tilkynntu FIRST og LEGO Education að komandi tímabil verði síðasta tímabil FIRST LEGO League.

Þetta eru stór tíðindi, en við viljum fullvissa allt okkar samfélag – nemendur, leiðbeinendur, skóla, foreldra og samstarfsaðila – að árleg vélmennakeppni okkar á Íslandi mun halda áfram.

FIRST LEGO League tímabilið í haust verður með nákvæmlega sama sniði og áður. Það er engin þörf á að kaupa nýjan búnað og eldri búnaður ykkar verður ekki úreltur.

Frá og með næsta ári tekur við nýr og enn meira spennandi kafli: Vélmennakeppnin okkar heldur áfram og verður aðgengileg enn fleiri börnum og ungmennum, með tækni og keppnisformum sem við þekkjum og metum.

Við viljum bjóða ykkur á Zoom-fund á mánudaginn næstkomandi kl. 14:15–15:45 þar sem við munum kynna nánar nýju vélmennakeppnina og næstu skref: https://eu01web.zoom.us/j/69484388812?pwd=fRIxZTJPg9dN7nsQ1oVWjITgokPaEJ.1

Takk fyrir áframhaldandi stuðning og áhuga. Við hlökkum til að deila og móta með ykkur framtíð íslenskrar vélmennakeppni.

12/01/2026

Spennandi tímar framundan hjá First LEGO League, þróun og breytingar með nýjum búnaði!

Takk sömuleiðis fyrir ykkar framlag til þessa frábæra dags Team Spark - Formula Student Iceland og Ada - Hagsmunafélag k...
15/11/2025

Takk sömuleiðis fyrir ykkar framlag til þessa frábæra dags Team Spark - Formula Student Iceland og Ada - Hagsmunafélag kvenna og kvára í upplýsingatækni við HÍ!

09/11/2025
08/11/2025

Til hamingju Berserkir! FIRST LEGO League meistarar 2025!

🏆Berserkir FIRST LEGO League meistarar 2025!🏆Liðið Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar sigraði Stóru LEGO-keppni grunns...
08/11/2025

🏆Berserkir FIRST LEGO League meistarar 2025!🏆

Liðið Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar sigraði Stóru LEGO-keppni grunnskólanna, FIRST LEGO League Ísland, sem fram fór í Háskólabíói í dag. Með sigrinum unnu Berserkir sér inn þátttökurétt á mótum FIRST® LEGO® League erlendis.

Þetta er í fimmta sinn sem lið úr Grunnskóla Hornafjarðar sigrar keppnina og er hann því sigursælasti skólinn frá upphafi 👏👏👏

Innilega til hamingju með sigurinn, Berserkir!

Við þökkum öllum liðunum kærlega fyrir þátttökuna og frábæra frammistöðu. Þvílíkur dagur!

Hlekkur á frétt Háskóli Íslands um keppnina og öll úrslit í fyrstu athugasemd 👇

📸 Sigurjón Ragnar

Flottu básarnir 😍
08/11/2025

Flottu básarnir 😍

Dagskrá FIRST Lego League Iceland 2025!Æsispennandi dagur framundan, endilega kíkið við!
08/11/2025

Dagskrá FIRST Lego League Iceland 2025!
Æsispennandi dagur framundan, endilega kíkið við!

Address

Háskóli Íslands, Sæmundargata 2
Reykjavík
102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when FIRST LEGO League Ísland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to FIRST LEGO League Ísland:

Share