Vitafélagið - Íslensk Strandmenning

Vitafélagið - Íslensk Strandmenning Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Vitafélagið - Íslensk Strandmenning, Reykjavík.

10/12/2025
Hlaðborð fjörunnar - þörunganytjar, ofurfæða í fjöruborðinu var yfirskrift fyrirlesturs sem Eydís Mary jónsdóttir hélt í...
27/11/2025

Hlaðborð fjörunnar - þörunganytjar, ofurfæða í fjöruborðinu var yfirskrift fyrirlesturs sem Eydís Mary jónsdóttir hélt í Breiðfirðingabúð í kvöld. Heim fóru allir fullir vitneskju um nýtingu ofurfæðunnar fyrr og nú og pakksaddir eftir allar kræsingarnar sem hún bar á borð. Þvílíkt sælgæti!!!

Ágæti félagsmaður.Í kvöld klukkan 20:00 ætlar hún Eydís Mary Jónsdóttir að fræða okkur um matþörunga og aðra ofurfæðu fj...
27/11/2025

Ágæti félagsmaður.
Í kvöld klukkan 20:00 ætlar hún Eydís Mary Jónsdóttir að fræða okkur um matþörunga og aðra ofurfæðu fjörunnar. Við ætlum að streyma þessum fyrirlestri á https://meet.jit.si/strandmenning í beinu streymi. Ef þið viljið hlusta þá vinsamlegast slökkvið á hljóðnema þannig að þið truflið ekki fyrirlesturinn.
Vonandi verður tæknin betri hjá okkur á nýju ári.

Gjögurtáarviti var sívalur 4 metra hár viti nyrst við austanverðan Eyjafjörð á hrygg sem liggur út frá fjallinu Gjögri. ...
14/11/2025

Gjögurtáarviti var sívalur 4 metra hár viti nyrst við austanverðan Eyjafjörð á hrygg sem liggur út frá fjallinu Gjögri. Vitinn stóð í 28 metra hæð og var reistur árið 1970. Áður stóð þar viti sem byggður var 1965 en eyðilagðist í gassprengingu 2. ágúst 1969 þar sem einn starfsmaður Vita- og hafnarmálastjórnar slasaðist alvarlega.[1][2]

Ljóseinkenni vitans var Fl(2)W 10s (tvö hvít blikkljós á 10 sekúndna fresti).[3]

Í júní 2025 var vitinn tekinn að halla talsvert vegna jarðvegsbreytinga og var talin hætta á að hann myndi falla í sjóinn.[2] Í nóvember sama ár var hann fallinn.

Vitinn á Gjögurtá, nyrst við austanverðan Eyjafjörð, stendur afar tæpt þar sem hrunið hefur úr undirstöðum hans. Vitinn hallar verulega og telur Vegagerðin að hætta sé á að hann falli fram af klettanösinni í sjóinn.

Guðmundur Guðmundsson, matvælafræðingur og stjórnarmaður í SlowFood á Íslandi flutti fróðlegan og skemmtileg fyrirlestur...
30/10/2025

Guðmundur Guðmundsson, matvælafræðingur og stjórnarmaður í SlowFood á Íslandi flutti fróðlegan og skemmtileg fyrirlestur um hertan fisk á fyrsta fræðslukvöldi félagsins í kvöld í Breiðfirðingabúð

Fræðslukvöld og aðalfundur Vitafélagsins...
20/10/2025

Fræðslukvöld og aðalfundur Vitafélagsins...

Í dag kvöddum við skipstjórann og bóndann Ólaf Ragnar Sigurðsson. Óli var dyggur félagi í Vitafélaginu- íslensk strandme...
13/10/2025

Í dag kvöddum við skipstjórann og bóndann Ólaf Ragnar Sigurðsson. Óli var dyggur félagi í Vitafélaginu- íslensk strandmenning og sat um tíma í stjórn félagsins. Hann skutlaðist á stjórnar - og fræðslufundi til Reykjavíkur í öllum veðrum, hafði sterkar skoðanir á strandmenningu þjóðarinnar, var ósérhlífinn og skemmtilegur samstarfsmaður. Óli var ötull talsmaður fyrir varðveislu menningarsögu Grindavíkur og virkur í Menningar- og sögufélagi Grindavíkur. Hann átti frumkvæði að smíði Grindavíkurskipsins sem er áttæringur, smíðaður að fyrirmynd dæmigerðra báta Grindvíkinga um og eftir miðja nítjándu öld. Með Óla er genginn einn ötulasti talsmaður um sögu strandmenningar á Suðurnesjum.

Nú fer hver að verða síðastur til að sjá sýningarnar FEGURÐ FJARÐA sem er margþætt samstarfsverkefni heimamanna við Sigl...
25/09/2025

Nú fer hver að verða síðastur til að sjá sýningarnar FEGURÐ FJARÐA sem er margþætt samstarfsverkefni heimamanna við Siglufjörð, Ólafsfjörð og Eyjafjörð, listamanna og Vitafélagsins-íslensk strandmenning. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar og læra að taka ábyrgð á umgengni við haf og strönd. Ljósmyndasýningarnar 8 opnupu á sjómannadaginn 1 júní sl og staqnda til 1 okt. næstkomandi. Umsögn á Akureyri.net:
https://www.akureyri.net/is/moya/news/ahrifarik-blanda-af-fegurd-og-sjokki

Átján ljósmyndir á níu stólpum prýða nú göngustíginn frá Torfunefsbryggju að Höepfner. Myndirnar eru hluti af ljósmyndasýningunni Fegurð fjarða sem opnuð var um sjómannadagshelgina víða á Norðurlandi. Markmið sýningarinnar er að vekja fólk til umhugsunar og læra að taka...

Auðvitað voru Finnar á meðal þeirra þjóða sem stunduðu síldveiðar við Ísland.  Í Röölä er að finna Síldarminjasafnið  Di...
11/09/2025

Auðvitað voru Finnar á meðal þeirra þjóða sem stunduðu síldveiðar við Ísland. Í Röölä er að finna Síldarminjasafnið Dikseli þar sem gefur að líta minjar frá þessum tíma. Á leið okkar á norrænu ráðstefnuna um súðbyrta báta í Kotka heilsuðum við Aníta safnstjóri Síldarminjasafnsins á Siglufirði uppá Rööläbúa.

Norræn ráðstefna um súðbyrta báta var haldin í Kotka og Loviisa í Finnlandi 4-6 sept. Um 130 gestir frá öllum norrænu rí...
11/09/2025

Norræn ráðstefna um súðbyrta báta var haldin í Kotka og Loviisa í Finnlandi 4-6 sept. Um 130 gestir frá öllum norrænu ríkjunum sóttu ráðstefnuna auk gesta frá Eistlandi, Orkneyjum og Þýskalandi.

Address

Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 20:00 - 22:00

Telephone

354 823 4417

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vitafélagið - Íslensk Strandmenning posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Vitafélagið - Íslensk Strandmenning:

Share